Hollvinir
Kæri Hollvinur,
Þú sem Hollvinur ert Háskólanum á Bifröst, Hollvinasamtökum Bifrastar og öðrum Bifrestingum mikilvægur hlekkur í uppbyggingu háskólanáms við Háskólann á Bifröst. Bifrestingar eru sem ein stór fjölskylda sem standa saman að varðveislu háskólanáms á Bifröst. Það sýndi sig best þegar viðræður um sameiningu við HR var til umfjöllunar, Hollvinir óttuðust að sú sérstaða, sterku rætur og saga sem Bifröst hefur, myndi tapast.
Bryndís Hlöðversdóttir fyrrum rektor orðaði þetta nokkuð vel á þessum tímamótum í Viðskiptablaðinu 23. júlí 2012:
„Hollvinir og velunnarar Bifrastar risu upp. Háskólarnir í Borgarfirði eru gífurlega mikilvægir fyrir nærsamfélagið, auk þess sem skaði yrði fyrir íslenskat háskólasamfélag ef Bifröst hyrfi af sviðinu. Við höfum sérstöðu sem kampusháskóli sem hafnar fjöldafyrirlestrarforminu og byggir á nálægð við nemendur og virkri þátttöku þeirra í tímum. Smæðin og háskólasvæðið gerir okkur kleyft að gera hlutina öðruvísi en stærri skólarnir í Reykjavík. Það verður líka að huga að fjölbreytni og að allir séu ekki steyptir í sama mót.“
Nú sem áður þurfum við að standa saman og styrkja hvern hlekk í Hollvinakeðjunni. Það gerum við með því að tala um Bifröst sem háskóla, afla Bifrestingum störf og halda áfram því góða starfi að styrkja bönd eldri og yngri Bifrestinga.
Góðar kveðjur,
Hallur Jónasson
formaður Hollvinasamtaka Bifrastar