Fylgibréf

Fylgibréf er orðið mikilvægur þáttur í umsóknarferlinu og æ oftar sem beðið er sérstaklega um slíkt þegar störf eru auglýst.

Við gerð fylgibréfa er mikilvægt að hafa eftirfarandi í huga:

1.     Stílaðu bréfið á ráðningarfulltrúa eða þann sem er tengiliður samkvæmt auglýsingu

2.     Tilgreindu afhverju þú ert góður kostur fyrir fyrirtækið

-       Hafðu auglýsinguna til hliðsjónar til að kanna hvaða kostum verið er að leita eftir

3.     Tilgreindu ástæðu þess að þú sækir um þetta starf

4.     Hver er núverandi staða þín á vinnumarkaði eða  skóla

5.     Segðu í hverju menntun þín, starfsreynsla og eiginleikar liggja

6.     Gott er að lýsa yfir áhuga á að komast í viðtal og gera betur grein fyrir sjálfum sér

7.     Upplýsingar um hvernig er best að ná í þig

8.     Vinsamleg kveðja og undirskrift.